Fréttir og tilkynningar
Upplýsingar um framboð aðgengilegar á kosningavef félagsmálaráðuneytisins
Félagsmálaráðuneytinu hafa borist upplýsingar um framboð frá kjörstjórnum í 32 sveitarfélagi af 79. Í heildina er um 56 framboðslista að ræða, en flestir eru þeir í Akureyrarkaupstað, eða 6 talsins.
Framboðslistar eru komnir fram í 19 sveitarfélögum, en óbundin kosning verður í 12 af þeim sveitarfélögum sem hafa sent ráðuneytinu upplýsingar. Þau sveitarfélög eru eftirfarandi:
- Helgafellssveit
- Eyja- og Miklaholtshreppur
- Reykhólahreppur
- Árneshreppur
- Kaldrananeshreppur
- Grímseyjarhreppur
- Grýtubakkahreppur
- Skútustaðahreppur
- Svalbarðshreppur
- Fljótsdalshreppur
- Borgarfjarðarhreppur
- Skaftárhreppur
Stefnt er að því að upplýsingar um framboð í öllum sveitarfélögum verði aðgengilegar á kosningavef ráðuneytisins www.kosningar.is undir liðnum sveitarfélög.
Upplýsingar um framboð eru uppfærðar um leið og þær berast ráðuneytinu frá viðkomandi kjörstjórn.


