Fréttir og tilkynningar
Upplýsingar um framboð á kosningar.is
Félagsmálaráðuneytinu hafa borist upplýsingar um framboð frá kjörstjórnum í 50 sveitarfélagi af 79. Í heildina er um 105 framboðslista að ræða.
Framboðslistar hafa borist frá kjörstjórnum í 37 sveitarfélögum, en óbundin kosning verður í 13 af þeim sveitarfélögum sem hafa sent ráðuneytinu upplýsingar.
Stefnt er að því að upplýsingar um framboð í öllum sveitarfélögum verði aðgengilegar á kosningavef ráðuneytisins http://kosningar.is/sveitarfelog/ undir liðnum sveitarfélög.
Upplýsingar um framboð eru uppfærðar um leið og þær berast ráðuneytinu frá viðkomandi kjörstjórn.
Enn vantar upplýsingar frá eftirfarandi sveitarfélögum:
- Reykjavík
- Seltjarnarneskaupstaður
- Hafnarfjarðarkaupstaður
- Kjósarhreppur
- Reykjanesbær
- Sandgerðisbær
- Sveitarfélagið Garður
- Skorradalshreppur
- Grundarfjarðarbær
- Helgafellssveit
- Stykkishólmsbær
- Eyja- og Miklaholtshreppur
- Snæfellsbær
- Bolungarvíkurkaupstaður
- Reykhólahreppur
- Súðavíkurhreppur
- Árneshreppur
- Kaldrananeshreppur
- Bæjarhreppur
- Sveitarfélagið Skagafjörður
- Húnaþing vestra
- Skagabyggð
- Akrahreppur
- Grímseyjarhreppur
- Arnarneshreppur
- Hörgárbyggð
- Svalbarðsstrandarhreppur
- Grýtubakkahreppur
- Skútustaðahreppur
- Svalbarðshreppur
- Seyðisfjarðarkaupstaður
- Fljótsdalshreppur
- Borgarfjarðarhreppur
- Djúpavogshreppur
- Sveitarfélagið Árborg
- Skaftárhreppur
- Ásahreppur
- Rangárþing ytra
- Sveitarfélagið Ölfus
- Skeiða- og Gnúpverjahreppur
- Bláskógabyggð
- Sameinað sveitarfélag Gaulverjarbæjarhr.,
Hraungerðishr. og Villingaholtshr.


