Fréttir og tilkynningar
Niðurstaða könnunar um nafn á nýtt sveitarfélag í Þingeyjarsýslu
Samhliða sveitarstjórnarkosningunum fór fram könnun meðal íbúa sameinaðs sveitarfélags Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps um nafn á hið nýja sveitarfélag. Niðurstaða könnuninnar er eftirfarandi:
Norðurþing 756 atkvæði
Norðausturbyggð 426 atkvæði
Gljúfrabyggð 101 atkvæði
Auð og ógild 109 atkvæði


