Fréttir og tilkynningar
Kjörbréf og nýkjörin sveitarstjórn
Á kosningavef félagsmálaráðuneytisins má finna upplýsingar um hlutverk kjörstjórna og hvenær ný sveitarstjórn tekur til starfa. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag, en yfirkjörstjórn skal gefa út kjörbréf til aðalfulltrúa í sveitarstjórn og jafnmargra varamanna. Eðlilegt er að senda út kjörbréf þegar kærufrestur er liðinn, en hann rennur út 7 dögum frá því úrslit eru kynnt. Jafnframt skal yfirkjörstjórn senda nýkjörinni sveitarstjórn greinargerð um úrslit kosninganna.
Að kærufresti liðnum eða að fullnaðarúrskurði uppkveðnum varðandi kosninguna, ef kosning hefur verið kærð, skal yfirkjörstjórn eyða hinum innsigluðu kjörseðlum og skrá yfirlýsingu þar um í gerðabók kjörstjórnar.


