Kjördagur

Er mögulegt að beita útstrikunum eða raða frambjóðendum að nýju við kosningu utan kjörfundar?

Svar:

í 62. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, er svohljóðandi ákvæði, "Kosning utan kjörfundar er því aðeins gild að notuð séu hin fyrirskipuðu kjörgögn. Kosning fer svo fram að kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðilinn bókstaf þess lista sem hann vill kjósa og má hann geta þess hvernig hann vill hafa röðina á listanum." Lesa meira

Er möguleiki að fá að fara inn á kjörstað til að kjósa eftir klukkan 22.00?

Svar:

Nei, það er ekki hægt að fara inn á kjörstað eftir kl. 22.00 til að kjósa.

Hefur stjórnmálaflokkur ótvíræðan rétt til að hafa fulltrúa sinn í kjördeild á kjördegi?

Svar:

Umboðsmönnum lista er heimilt að vera í kjörfundarstofu á meðan kosning stendur yfir. Lesa meira

Má strika út nafn á framboðslista og setja annað í staðinn?

Svar:

Nei, það er ekki leyfilegt að strika út eitt nafn á lista og setja annað nafn í staðinn. Lesa meira

Netspjall


Netspjall félagsmálaráðuneytisins

Netspjall gefur almenningi og fyrirtækjum kost á því að komast í beint samband við afgreiðslu ráðuneytisins.

  • Netspjall ráðuneytisins

  • Stoðval