Kjósendur

Á hvaða tíma dags get ég kosið?

Svar:

Opnunartími kjörstaða er misjafn eftir stærð sveitarfélaga. Í stærstu sveitarfélögunum opna kjörstaðir kl. 9 eða 10 árdegis en í minnstu sveitarfélögunum opna þeir yfirleitt kl. 12. Lesa meira

Ef ég kemst ekki til kjörfundar vegna veikinda á kjördag er möguleiki að fá sendan fulltrúa frá kjörstjórn heim?

Svar:

Nei, ekki er unnt að fá sendan fulltrúa frá kjörstjórn heim á kjördag.

Er hægt að biðja um að það komi fulltrúi sýslumans í heimahús fyrir kjördag?

Svar:

Já, það er unnt að kjósa í heimahúsi, samanber nánari útlistun hér að neðan. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl. 16 fjórum dögum fyrir kjördag. Lesa meira

Mig langar að lesa mér til um sveitarstjórnarlögin og lög um kosningar til sveitarstjórna, hvar get ég fengið sérprent af lögunum?

Svar:

Sveitarstjórnarlögin liggja frammi í sérprentun í afgreiðslu félagsmálaráðuneytisins sem er til húsa á fjórðu hæð í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Einnig er hægt að finna texta laganna á heimasíðu Alþingis eða ráðuneytisins. Lesa meira

Mig langar að lesa mér til um sveitarstjórnarlögin og lög um kosningar til sveitarstjórna.

Svar:

Sveitarstjórnarlögin liggja frammi í sérprentun í afgreiðslu félagsmálaráðuneytisins sem er til húsa á fjórðu hæð í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Einnig er hægt að finna texta laganna á heimasíðu Alþingis eða ráðuneytisins. Lesa meira

Skiptir máli hvort maður gerir X eða O á kjörseðilinn?

Svar:

Kjósandi á að marka kross á kjörseðilinn fyrir framan nafn þess lista sem hann vill kjósa. Lesa meira

Netspjall


Netspjall félagsmálaráðuneytisins

Netspjall gefur almenningi og fyrirtækjum kost á því að komast í beint samband við afgreiðslu ráðuneytisins.

  • Netspjall ráðuneytisins

  • Stoðval