Svar:
Sá sem vill kæra úrslit kosninganna skal afhenda kæru sína hlutaðeigandi sýslumanni innan sjö daga frá því að úrslit eru tilkynnt.
Lesa meira
Svar:
Hagstofa Íslands gefur að loknum hverjum kosningum út ítarlega skýrslu um úrslit þeirra.
Lesa meira
Svar:
Til þess að breytingar verði á röðun á framboðslista þarf meiri hluti þeirra sem greiðir atkvæði með þeim lista að gera sömu breytingar eða sams konar. Þá breytist röðin þannig að þeir einstaklingar sem strikaðir eru út ná ekki kjöri og þeir sem eru fyrir neðan þá á lista færast upp.
Svar:
Ný sveitarstjórn tekur við störfum fimmtán dögum eftir kjördag, þ.e. þann 11. júní 2006.
Svar:
Við þessar aðstæður ræður hlutkesti því hver fær þriðja manninn.