Utankjörfundur

Er heimilt að merkja framboðslista við sveitarstjórnarkosningar með listabókstaf sem notaður var við síðustu alþingiskosningar?

Fullt svar:

Í þessu felst að stjórnmálasamtök sem buðu fram við alþingiskosningar 1999 eiga forgang á að nota sama listabókstaf, bjóði þau fram við sveitarstjórnarkosningar í viðkomandi sveitarfélagi. Þetta gildir jafnvel þótt óskylt framboð hafi komið fram í sveitarfélaginu við sveitarstjórnarkosningar 1998 sem notaði sama listabókstaf. Ef stjórnmálasamtökin bjóða ekki fram í umræddu sveitarfélagi er öðrum framboðum almennt frjálst að óska eftir því að nota listabókstaf þeirra samtaka og myndi þá yfirkjörstjórn almennt vera rétt að úthluta listabókstafnum til þess framboðs sem bauð fram 1998 undir sama listabókstaf. Ekki verður talin þörf á að skriflegt samþykkti liggi fyrir frá stjórnmálasamtökum sem notuðu sama listabókstaf við alþingiskosningar 1999, en ekki er óeðlilegt að umboðsmenn framboðslista gangi a.m.k. úr skugga um hvort vænta megi framboðs úr þeirri átt við sveitarstjórnarkosningar í viðkomandi sveitarfélagi.


Netspjall


Netspjall félagsmálaráðuneytisins

Netspjall gefur almenningi og fyrirtækjum kost á því að komast í beint samband við afgreiðslu ráðuneytisins.

  • Netspjall ráðuneytisins

  • Stoðval