Algengar spurningar

Þurfa frambjóðendur ekki að vera með hreint sakavottorð?

Svar:

Nei, það er engin krafa gerð um það í lögum að frambjóðendur til sveitarstjórnar þurfi að hafa hreint sakavottorð. Lesa meira

Eiga umboðsmenn framboðslista rétt á að fá ljósrit af meðmælendalistum annarra framboðslista?

Svar:

Ekki verður talið að meðmælendur eigi rétt á nafnleynd. Kjörstjórn er því skylt samkvæmt upplýsingalögum að afhenda listana, verði farið fram á það.

Geta listar myndað kosningabandalag fyrir kosningar og þannig nýtt betur atkvæði sín og fengið fleiri kjörna fulltrúa?

Svar:

Í því fyrirkomulagi sem lýst er í fyrirspurn þinni felst að viðkomandi stjórnmálaöfl bjóða fram hvert sinn lista en bindast þá samtökum um að nýta atkvæðaleifar á sem hagkvæmastan hátt. Það felur í sér að atkvæðaleif lista sem ekki á möguleika á fleiri fulltrúum nýtist þeim lista kosningabandalagsins sem er næstur því að fá kjörinn fulltrúa. Lesa meira

Hvað eiga að vera margir frambjóðendur á lista?

Svar:

Það er ekki bundið ákveðnum íbúafjölda hvort listakosning skuli fara fram. Ef enginn listi kemur fram fyrir framboðsfrest, er kosningin óhlutbundin. Hvað varðar fjölda á lista þá skal á framboðslista vera að minnsta kosti jafnmörg nöfn frambjóðenda og kjósa á sem aðalmenn í viðkomandi sveitarstjórn og aldrei fleiri en tvöföld sú tala. Lesa meira

Hvað gerist ef aðeins einn framboðslisti berst fyrir lok framboðsfrests?

Svar:

Þá skal yfirkjörstjórn framlengja framboðsfrest um tvo sólarhringa. Lesa meira

Hvar fæ ég upplýsingar um hverjir eiga sæti í kjörstjórn?

Svar:

Upplýsingar um hverjir skipa kjörstjórn er hægt að fá á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags. Lesa meira

Hver á fjöldi meðmælenda að vera í nýsameinuðum sveitarfélögum?

Svar:

Fjöldi meðmælenda ætti að miðast við nýja sveitarfélagið þar sem verið er að kjósa í sveitarstjórn þess. Lesa meira

Hvað gerist ef það berst enginn framboðslisti?

Svar:

Ef enginn framboðslisti berst áður en framboðsfrestur rennur út, þann 6. maí 2006, verður kosningin óbundin. Lesa meira

Hvað þarf að koma fram í meðmælabrefi með framboðslista?

Svar:

Í hausi bréfsins ætti að vera yfirlýsing, orðuð á einfaldan hátt svo sem... "Við undirrituð, kjósendur í x-hreppi, lýsum yfir stuðningi við Z-lista, nafn lista." Lesa meira

Hvað þarf maður að gera til að geta boðið fram lista?

Svar:

Til að geta boðið fram lista þarf að uppfylla skilyrði laga um kosningar til sveitarstjórna um lágmarksfjölda frambjóðenda og meðmælenda. Þessi fjöldi er mismunandi eftir stærð sveitarfélaga og fjölda aðalmanna í sveitarstjórn í hverju sveitarfélagi. Lesa meira

Netspjall


Netspjall félagsmálaráðuneytisins

Netspjall gefur almenningi og fyrirtækjum kost á því að komast í beint samband við afgreiðslu ráðuneytisins.

  • Netspjall ráðuneytisins

  • Stoðval