Ný sveitarstjórn
Ný sveitarstjórn tekur við
Ný sveitarstjórn tekur við
Nýkjörin sveitarstjórn
- Yfirkjörstjórn skal gefa út kjörbréf til kjörinna aðalmanna og jafnmargra varamanna. Önnur kjörbréf eru gefin út eftir þörfum.
- Yfirkjörstjórn skal senda nýkjörinni sveitarstjórn greinargerð um úrslit kosninganna.
- Nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag.
- Á tímabilinu frá kjördegi og þar til nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum hefur hver sveitarstjórnarmaður í fráfarandi sveitarstjórn heimild til að krefjast frestunar á framkvæmd ákvörðunar sem sveitarstjórn tekur á því tímabili.
- Undanþága frá rétti til þess að krefjast frestunar. Ef mál er þannig vaxið að framkvæmd ákvörðunar þolir enga bið verður þessa úrræðis ekki neytt, enda sé heimild til afgreiðslu málsins í fjárhagsáætlun, lögum, almennum fyrirmælum stjórnvalda eða með leyfi félagsmálaráðuneytisins.
- Ef félagsmálaráðuneytið hefur úrskurðað kosningu ógilda skal nýkjörin sveitarstjórn sitja uns nýjar kosningar hafa farið fram.
- Sveitarstjórn sem situr við slíkar aðstæður hefur takmarkaðar heimildir til að taka ákvarðanir. Eftir að kjörtímabili fráfarandi sveitarstjórnar er lokið og þar til löglega kjörin sveitarstjórn tekur við störfum getur starfandi sveitarstjórn ekki innt af hendi neinar greiðslur eða gengist undir nokkrar skuldbindingar fyrir hönd sveitarfélagsins nema samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun, lögum, almennum fyrirmælum stjórnvalda eða með leyfi félagsmálaráðuneytisins.