Kosningaúrslit fundin / Talning atkvæða
Kosningaúrslit fundin
Talning atkvæða
Á þessari síðu:
Bundnar hlutfallskosningar
Fyrst eru talin öll atkvæði sem hver listi hefur hlotið og er þá fundin atkvæðatala hvers lista.
Þá þarf að finna hve margir frambjóðendur hafa náð kosningu sem aðalmenn af hverjum lista. Skal eftirfarandi aðferð notuð:
- Deila skal atkvæðatölum listanna með tölunum 1, 2, 3, 4 o.s.frv. Útkomutölur eru skráðar fyrir hvern lista.
- Fyrsta fulltrúa fær sá listi kjörinn sem hæstu útkomutölu hefur. Sú tala er síðan felld niður. Annan fulltrúa fær sá listi sem nú hefur hæstu útkomutölu. Þessu skal fram haldið uns úthlutað hefur verið jafnmörgum fulltrúum og kjósa á.
- Nú eru of fá nöfn á lista þegar til úthlutunar kemur skv. 2. tölul. og skal þá ganga fram hjá þeim lista við frekari úthlutun.
- Nú eru tvær eða fleiri útkomutölur jafnháar þegar að þeim kemur skv. 2. tölul. og skal þá hluta um röð þeirra.
Loks er skoðað hvort röð frambjóðenda á hverjum lista tekur einhverjum breytingum vegna útstrikana eða breytinga á númeraröð. Er þá fylgt eftirfarandi reglum:
- Kjörstjórn tekur saman þá kjörseðla þar sem engin breyting hefur verið gerð á listanum. Þar telst efsta nafn listans vera í fyrsta sæti, næsta nafn í öðru sæti o.s.frv.
- Næst tekur kjörstjórn alla þá kjörseðla þar sem kjósendur hafa gert einhverjar breytingar á röð frambjóðenda og telur atkvæði hvers frambjóðanda í hvert sæti listans.
- Nöfnum frambjóðenda á listanum er nú raðað þannig að sá sem hlotið hefur flest atkvæði í 1. sæti hlýtur það sæti. Sá frambjóðandi, að þessum slepptum, sem hlotið hefur flest atkvæði í 1. og 2. sæti samanlagt hlýtur 2. sætið o.s.frv. uns raðað hefur verið í sæti svo mörgum frambjóðendum listans að ljóst sé hverjir teljast fulltrúar hans og hverjir varafulltrúar.
- Þeir einstaklingar sem ekki hafa náð kjöri sem aðalmenn af framboðslista teljast varamenn í réttri röð.
Óbundnar kosningar
Talin eru atkvæði sem hver einstaklingur fær.
Þeir sem flest atkvæði fá sem aðalmenn eru réttkjörnir aðalmenn.
Hafi tveir eða fleiri hlotið jafnmörg atkvæði sem aðalmenn og geta ekki báðir eða allir náð kjöri ræður hlutkesti.
Varamenn skulu vera jafnmargir og aðalmenn og er röð varamanna ákveðin með eftirfarandi hætti:
- Varamaður er sá sem flest atkvæði hlýtur samanlagt í 1. sæti á lista yfir varamenn að viðbættum þeim atkvæðum sem hann hlaut í sæti aðalmanns.
- Varamaður er sá sem flest atkvæði hlýtur í 2. sæti lista varamanna að viðbættum þeim atkvæðum sem hann hlaut í sæti aðalmanns og í 1. sæti á lista varamanna.
Kosning annarra varamanna ákvarðast á sama hátt uns fyllt er í sæti þau sem kjósa skal í.
Nú fá tveir menn jafnmörg atkvæði samanlagt í sæti varamanns og skal þá hlutkesti ráða hvor hlýtur sætið. Sá sem ekki hlýtur sætið tekur sæti næsta varamanns og færast þá þeir varamenn sem á eftir koma um set.
Niðurstaða varðandi röð varamanna kom til úrskurðar félagsmálaráðuneytisins 3. júlí 1998 (1998:92) varðandi sveitarstjórnarkosningar í Kelduneshreppi. Deilt var um hvort atkvæði greidd til aðalmanna kæmu til talningar þegar ákveðin væri röð varamanna. Vitnað var til 2. mgr. 87. gr. laganna og segir síðan svo í úrskurðinum:
„Framangreind regla kom fyrst í sveitarstjórnarlög með lögum nr. 19/1978 um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 58/1961. Í greinargerð með frumvarpi til þeirra breytingarlaga, sem lagt var fram á 99. löggjafarþingi 1977-78, segir svo m.a.: „Sú leið, sem lagt er til í frv. að farin verði, ætti að gera kleift að kjósa aðalmenn og varamenn á sama kjörfundi og tryggja að ekki verði aðrir kosnir aðalmenn en þeir, sem til þess hafa kjörfylgi, en þeim nýtist atkvæðin til kjörs varamanna, sem fá atkv. á lista aðalmanna, nái þeir ekki kjöri sem slíkir.“
Með vísan til þessara ummæla telur ráðuneytið að túlka beri ákvæði 2. mgr. 87. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna á þá leið að við ákvörðun á því hver telst kjörinn varamaður beri að leggja saman þau atkvæði sem viðkomandi fær í sæti aðalmanns, og í viðkomandi sæti varamanns, auk atkvæða sem hann fær í sæti varamanna á undan því sæti sem um ræðir ef við á. Samtala þeirra atkvæða ræður burtséð frá því hvort viðkomandi einstaklingur fær eitthvert atkvæði í það sæti varamanns sem úthluta á eða ekki. Með þessum hætti nýtast þau atkvæði sem viðkomandi fær sem aðalmaður að fullu við úthlutun á sætum varamanna."
3. júlí 1998 - Kelduneshreppur - Úrskurður um sveitarstjórnarkosningar 23. maí 1998.

