Utankjörfundur

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Tímamörk

Kjósanda er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar frá þeim degi er átta vikur eru til kjördags. Framboðsfresturinn er hins vegar þrjár vikur. Réttur til að greiða atkvæði utan kjörfundar er því frá og með 2. apríl og til kjördags.

Kjörstaðir

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á eftirfarandi stöðum:

  • Hjá sýslumönnum um land allt á aðalskrifstofu sýslumanns eða í útibúi. Sýslumaður getur einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla á aðsetri embættis fari fram á sérstökum kjörstað utan aðalskrifstofu, svo og að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum í umdæmi hans.
  • Hjá hreppstjórum, á skrifstofu eða heimili hreppstjóra.
  • Erlendis á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnun, í sendiræðisskrifstofu eða á skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur og ákveðið að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis. Utanríkisráðuneytið auglýsir hvar og hvenær atkvæðagreiðsla getur farið fram erlendis.
  • Á skipum. Kjósandi, sem er í áhöfn eða farþegi um borð í íslensku skipi í siglingum erlendis eða á fjarlægum miðum, má kjósa um borð í skipinu. Skipstjóri eða sá sem hann tilnefnir er kjörstjóri.
  • Á sjúkrahúsum, í fangelsum og á dvalar- og vistheimilum. Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra og stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um fangelsi og vistmenn þar.
  • Heimahúsi. Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, sbr. framangreint. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans. Slík atkvæðagreiðsla má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi 3 vikum fyrir kjördag. Sjá nánar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu sjúkra. Umsóknareyðublað má finna hér með PDF-sniði og hér með word-sniði.

Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar.

Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, samanber framangreint. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en klukkan 16.00 fjórum dögum fyrir kjördag.

Atkvæðagreiðslur undir þessum lið mega ekki fara fram fyrr en þremur vikum fyrir kjördag. Kjörstjóri auglýsir hvar og hvenær atkvæðagreiðsla getur farið fram á þann hátt sem venja er á hverjum stað.

Kosningaathöfnin

Kjósandi sem greiða vill atkvæði utan kjörfundar skal gera kjörstjóra grein fyrir sér, svo sem með því að framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra. Með kennivottorði er átt við önnur persónuskilríki, svo sem ökuskírteini, vegabréf eða greiðslukort með mynd. Að þessu loknu fær kjósandi afhent kjörgögn. Skal kjósandi síðan aðstoðarlaust og án þess að nokkur annar sjái rita atkvæði sitt á kjörseðilinn og setja síðan atkvæðið í kjörseðilsumslagið.

Bundnar hlutfallskosningar (listakosningar)

Kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðilinn bókstaf þess lista sem hann vill kjósa og má hann geta þess hvernig hann vill hafa röðina á listanum.

Óbundnar kosningar (persónukosningar)

Kjósandi ritar á kjörseðilinn nöfn og heimilisföng þeirra aðal- og varamanna er hann kýs. Rita skal númer fyrir framan nöfn varamanna til að ákvarða röð þeirra. Því næst áritar og undirritar kjósandi fylgibréfið í viðurvist kjörstjóra sem vottar atkvæðagreiðsluna. Að lokum skal kjörseðilsumslagið ásamt fylgibréfinu lagt í sendiumslagið og því lokað vandlega. Umslagið skal síðan á ritað til hreppstjórans, sýslumannsins eða kjörstjórnarinnar í því umdæmi þar sem kjósandinn telur sig standa á kjörskrá. Á sendiumslagið skal og rita nafn kjósanda, kennitölu og lögheimili.

Kjósandi þarfnast aðstoðar

Ef kjósandi skýrir kjörstjóra svo frá að hann sé eigi fær um að árita kjörseðilinn á fyrirskipaðan hátt eða árita og undirrita fylgibréfið sakir sjónleysis eða þess að honum sé hönd ónothæf skal kjörstjóri veita honum aðstoð til þess í einrúmi, enda er hann bundinn þagnarheiti um að segja ekki frá því sem þeim fer þar á milli. Aðstoð við að árita kjörseðil skal því aðeins veitt að kjósandi geti sjálfur skýrt þeim er aðstoðina veitir ótvírætt frá því hvernig hann vill greiða atkvæði sitt. Óheimilt er að bjóða þeim aðstoð er þannig þarfnast hjálpar.

Kjörseðill ónýtist

Ef kjörseðill ónýtist hjá kjósanda má hann fá annan kjörseðil í stað hins.

Skil á utankjörfundaratkvæði

Atkvæði greitt hjá kjörstjóra í umdæmi þar sem kjósandi er á kjörskrá.

Kjósandi skilur þar eftir bréf með atkvæði sínu og skal sjálfur láta bréfið í venjulegan atkvæðakassa. Atkvæðakassinn skal innsiglaður af kjörstjóra ásamt hlutaðeigandi kjörstjórn og er umboðsmönnum lista heimilt að setja á hann innsigli sín.

Atkvæði greitt utan umdæmis.

Kjósendur skulu sjálfir annast og kosta sendingu atkvæðisbréfs síns. Kjörstjóra er þó skylt ef kjósandi óskar þess að koma bréfinu í póst. Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandinn er á kjörskrá.

Utankjörfundaratkvæði skal vera komið í hendur viðkomandi kjörstjórnar fyrir lok kjörfundar á kjördag svo unnt sé að taka það til greina við kosninguna.

Utankjörfundaratkvæðið er þannig á ábyrgð kjósanda þar til það hefur borist viðkomandi kjörstjórn.

Kjósanda er heimilt að greiða atkvæði á kjörstað á kjördag þó hann hafi sent inn utankjörfundaratkvæði. Utankjörfundaratkvæðið er þá lagt til hliðar óopnað.

Enn fremur er kjósanda heimilt að greiða atkvæði utankjörfundar oftar en einu sinni. Hið síðastgreidda atkvæði er það eina sem tekið er til greina. Utankjörfundaratkvæði telst greitt þann dag sem fylgibréfið er dagsett.

  

Sjá úrskurð félagsmálaráðuneytisins frá 19. ágúst 1986 (ÚFS 1986-1989:22). Í því máli barst utankjörfundaratkvæði tveimur dögum eftir að kjörfundi lauk og var ekki heimilt að taka það til greina. Kjósandi getur jafnan krafist þess af hverjum þeim er varðveitir bréf með atkvæði hans, sé það ekki varðveitt í innsigluðum atkvæðakassa, að hann afhendi sér það, allt þar til atkvæðið hefur verið tekið gilt af viðkomandi kjörstjórn.

Fróðlegur úrskurður: Í úrskurði félagsmálaráðuneytisins frá 22. júlí 1998 var fjallað um framkvæmd tiltekins hluta utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir sveitarstjórnarkosningar í Vesturbyggð, m.a. varðandi hæfi sýslumanns sem kjörstjóra við utankjörfundaratkvæðagreiðslu.

Skjal fyrir Acrobat Reader22. júlí 1998 - Vesturbyggð - Úrskurður um sveitarstjórnarkosningar 23. maí 1998.

 

Netspjall


Netspjall félagsmálaráðuneytisins

Netspjall gefur almenningi og fyrirtækjum kost á því að komast í beint samband við afgreiðslu ráðuneytisins.

  • Netspjall ráðuneytisins

  • Stoðval